varðaFá frían vef

Persónuvernd

Persónu­vernd.

Stutt og skýrt: hvaða upplýsingum við söfnum, af hverju og hvað þú getur gert.

Ábyrgðaraðili

AVL Production ehf., kt. 410726-0170, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á þessum vef. Hafðu samband á netfangið sem gefið er upp á síðunni Samband ef þú hefur spurningar.

Hvað við geymum

Þegar þú sendir fyrirspurn geymum við það sem þú skrifar í formið: nafn, netfang, síma og fyrirtæki ef þú gefur það upp, skilaboðin og hönnunina sem þú settir saman á síðunni Verk ef þú velur að láta hana fylgja. Til að verjast ruslpósti geymum við einnig dulkóðað fingrafar af IP-tölu og upplýsingar um vafra.

Af hverju

Eingöngu til að svara fyrirspurninni og, ef þú vilt, gera þér tilboð. Vinnslan byggir á beiðni þinni um að við höfum samband (ráðstafanir að beiðni hins skráða áður en samningur er gerður). Við seljum aldrei upplýsingar og notum þær ekki í auglýsingaskyni.

Hver hefur aðgang

Aðeins starfsfólk Vörðu. Upplýsingarnar eru hýstar hjá Cloudflare og tilkynningar sendar með tölvupóstþjónustunni Resend. Báðir aðilar vinna gögnin samkvæmt vinnslusamningi og reglum EES um persónuvernd.

Hve lengi

Fyrirspurnum sem ekki leiða til samnings er eytt innan 12 mánaða. Ef samningur er gerður gilda reglur um bókhald.

Vafrakökur og geymsla í vafra

Við notum engar rakningar- eða auglýsingakökur. Hönnunin sem þú setur saman á síðunni Verk er geymd í þínum eigin vafra (localStorage) svo hún geti fylgt fyrirspurninni, og fer ekki til okkar nema þú sendir hana.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt. Sendu okkur línu og við göngum frá því. Þú getur einnig leitað til Persónuverndar.